Skip to main content
Ef keypt er fyrir 14999 kr. eða meira er enginn sendingarkostnaður

Skilmálar


Þegar þú leggur inn pöntun hjá Nita.is þá samþykkir þú þessa skilmála. 

    Afgreiðsla

    Reynt er að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. 

    Verð á vöru og sendingakostnaður

    Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með 24% virðisaukaskatti (VSK).

    Nita ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

    Afhendingartími vöru fer eftir því sem valið er. Stuðst er við Póstinn og Dropp, gera má ráð fyrir 2-3 daga afhendingartíma. 

    Af öllum pöntunum dreift af Póstinum eða Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Nita.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Nita.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

    Einnig er hægt að sækja vörur á lager í Kópavog, Baugakór 2, 203 Kópavogur, eftir nánara samkomulagi. 

    Skilaréttur 

    Viðskiptavinir geta fengið vörur endurgreiddar að fullu ef þeim er skilað í upprunalegu ástandi og umbúðum innan 31 dags frá afhendingu ásamt sölureikningi. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema vara sé á útsölu eða sértilboði við vöruskil. Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

    Sendingakostnaður vöru er ekki endurgreiddur og eru endursendar vörur á ábyrgð og kostnað kaupanda nema um sé að ræða að ranga eða gallaða vöru.

    Ef að þú þarft að skila vöru sem þú keyptir hjá okkur er best að hafa samband í gegnum netfangið nitavefverslun@gmail.com

    Gallaðar vörur 

    Ef um galla á vöru er að ræða þá er hægt að fá aðra sams konar vöru í staðinn.

    Að öðrum kosti er gallaða varan endurgreidd. Nita ehf. endurgreiðir einnig allan sendingakostnað sem um ræðir.

    Við hvetjum kaupanda til að hafa samband við okkur á nitavefverslun@gmail.com svo við getum leyst málið í sameiningu. 

    Greiðsla  

    Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja um að greiða með debet­ eða kreditkorti (VISA/VISA ELECTRON/MASTERCARD/MAESTRO) eða Netgíó.

    Nita ehf.. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

    Öryggisskilmálar 

    Nita ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Lög og varnarþing 

    Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

    Hafðu samband 

    Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar endilega hafðu samband í síma 8687066 eða sendu okkur póst á nitavefverslun@gmail.com

    Upplýsingar um fyrirtækið  

    Nita ehf.
    Heimilisfang: Baugakór 2, 203 Kópavogur
    Kennitala: 650821-0330
    VSK númer: 142242

    Karfan þín